PRESS_IMG_ALT

Press & Media


19 Thorshofn Langanes Althjodleg veisla i ithrottahusinu

15.08.2006: thorshofn.is - langanes.is - Alþjóðleg veisla í íþróttahúsinu, Ísland

Framandi réttir og kræsingar voru á borðum í íþróttamiðstöðinni Verinu s.l. föstudagskvöld en þá buðu ungmenni úr samtökunum Seeds heimamönnum til veislu.

Á boðstólum voru réttir frá heimalöndum þessa unga fólks en þau höfðu útbúið allt sjálf og tóku rausnarlega á móti gestum sínum.

Þegar búið var að bragða á flestum réttunum var brugðið á leik og farið í spurningakeppni en efnið var einkum landfræðilegt, frá Íslandi og þjóðlöndum unga fólksins.

Kvöldinu lauk með mikilli kátínu og var hin besta skemmtun.

Þetta unga fólk, alls 13, frá ýmsum þjóðlöndum hefur dvalið hér um hríð og markmið samtaka þeirra er hvers kyns umhverfisvernd en einkum að hreinsa strendur landsins.

Þau hafa bæði gróðursett og annast beð og plöntur sem fyrir eru og miklum tíma hafa þau varið í ruslatínslu.

Þau dvelja í tvær vikur á Þórshöfn og hafa aðstöðu í íþróttamiðstöðinni en sér til aðstoðar hafa þau Angantý Einarsson, sem áður verið slíkum hópum innan handar. LS

^ Go back to top PRESS_CORNER3_ALT PRESS_CORNER4_ALT
16 Farfuglaheimili Seeds a Islandi

14.08.2006: hostel.is - Farfuglaheimili - Fréttir - SEEDS á Íslandi, Ísland

Dagana 2. – 16. júlí sl. dvaldi hér á landi hópur 12 sjálfboðaliða frá 7 þjóðlöndum til að vinna að ýmsum umhverfisverkefnum á vegum Farfugla.

Var hér um að ræða samstarfsverkefni Farfugla og alþjóðlegu sjálfboðliðasamtakanna SEEDS ( SEE beyonD borderS – Iceland ). Vann hópurinn m.a. við gróðursetningu og hreinsun í Valabóli fyrir ofan Hafnarfjörð, grisjun trjáa og göngustígagerð í Þórsmörk og við málningarvinnu á Tjaldsvæðinu í Laugardal. Fullyrða má að þetta samstarf hafi gengið mjög vel og mörg þörf verkefni voru kláruð. Eins og áður hefur komið fram var þessi vinna unnin í sjálfboðaliðsvinnu en Farfuglar sáu hópnum fyrir fæði og gistingu meðan á dvöl þeirra stóð hér á landi.

Farfuglar vilja þakka öllum þeim sem aðstoðuðu við verkefnið kærlega fyrir aðstoðina. Sérstakar þakkir fá þó Hafnarfjarðarbær og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar. Upplýsingar um umhverfisstarf Farfugla er að finna á www.hostel.is.

Upplýsingar um SEEDS er að finna á heimasíðu samtakanna; www.SeedsIceland.org

^ Go back to top PRESS_CORNER5_ALT PRESS_CORNER6_ALT
17 Hostel in Iceland News Seeds in Iceland

14.08.2006: hostel.is - News - SEEDS in Iceland, Ísland

A group of 12 volunteers from 7 countries were staying in Iceland between the 2nd and the 16th of July. This group was assisting Hostelling International Iceland with various environmental projects. This was a co operative project between HI Iceland and an international volunteer organization called SEEDS (SEE beyonD borderS – Iceland). The group was planting trees and cleaning in Valaból, a small piece of land owned by HI Iceland just outside Reykjavík.

Trees were cut and walking paths built in Thorsmork and finally doing some odd paint jobs at Reykjavík campsite.

This co-operation has been very successful and many demanding jobs have been finished. As mentioned this was done by a group of volunteers but HI Iceland provided the group with food and accommodation while staying in Iceland. HI Iceland wants to thank everybody dearly that were of assistance to the project. Special thanks to Hafnarfjordur town and the Reforestation association of Hafnarfjordur.

Further information about HI Iceland’s environmental projects can be found on www.hostel.is.

Further information on SEEDS can be found on the organizations home page www.SeedsIceland.org

^ Go back to top PRESS_CORNER3_ALT PRESS_CORNER4_ALT
12 SEEDS sjalfbodalidar i Dalvikurbyggd.JPG

02.08.2006: dalvik.is - SEEDS sjálfboðaliðar í Dalvíkurbyggð, Ísland

Sextán sjálfboðaliðar SEEDS samtakanna eru væntanlegir til Dalvíkurbyggðar í dag en þeir munu dvelja hér við sjálfboðastörf í kringum Fiskidaginn mikla.

Sjálfboðaliðarnir koma til með að gista í Gimli, félagsheimili Skátafélagsins hér í Dalvíkurbyggð og munu vinna fyrir, eftir og meðan á Fiskidegi stendur við alls konar verkefni.

SEEDS vinnur að því að auka virðingu fyrir menningarlegum fjölbreytileika, gagnkvæmum skilningi og umhverfisvernd með verkefnum sem efla, hvetja og hjálpa fólki af öllum aldri, frá öllum menningarheimum og með allskonar bakgrunn að mynda sér skoðanir og taka afstöðu um okkar hlutverk í þróunn á heiminum í átt að friði, umburðarlyndi, stöðuleika og þekkingaöflum úr mismunandi menningarheimum.

SEE beyonD borderS, reynir að bjóðu uppá góð verkefni fyrir fólk af mismunandi uppruna til að lifa, læra, eignast reynslu og vinna saman. Heimasíða samtakana er www.seedsiceland.org

^ Go back to top PRESS_CORNER5_ALT PRESS_CORNER6_ALT
11 Eldur i Hunathingi

26.07.2006: Eldur í Húnaþingi, Ísland

Eldur í Húnaþingi.

26. till 30. Júllí 2006

web: unglist.forsvar.is

Melló Músika

Central Park Hvammstangi

Ragga Gisla i Borgarvirki

Bílabió

Ball med buff og loveguru

Listasýning

Sundlaugartónleikar

  Download Eldur í Húnaþingi

^ Go back to top PRESS_CORNER3_ALT PRESS_CORNER4_ALT
09 Hunahornid www.huni.is Sjalfbodalidar Seeds a Hvammstanga

25.07.2006: huni.is - Sjálfboðaliðar SEEDS á Hvammstanga, Ísland

Þann 12. júlí sl. kom hópur sjálfboðaliða frá samtökunum SEEDS til Hvammstanga. Um er að ræða samtök ungra sjálfboðaliða sem vinna að umhverfismálum í víðasta skilningi þess orðs. Markmið samtakanna eru að stuðla að friði og vináttu milli manna, og að fólk umgangist náttúruna af virðingu. Sjálfboðaliðarnir munu dvelja á Hvammstanga í þrjár vikur og vinna, í samstarfi við vinnuskóla Húnaþings vestra, að ólíkum verkefnum, s.s. göngustígagerð, skógrækt og viðhaldi gamalla mannvirkja. Þau munu m.a. hjálpa til við undirbúning unglistahátíðarinnar Eldur í Húnaþingi og munu þau taka þar virkan þátt í ýmsum uppákomum.

^ Go back to top PRESS_CORNER5_ALT PRESS_CORNER6_ALT
08 www.hunathing.is Hunathining vestra

16.07.2006: hunathing.is - Sunnudagsganga með sjálfboðaliðum, Ísland

Þessa dagana er hópur erlendra sjálfboðaliða að störfum á Hvammstanga. Útlendingarnir vildu ólmir komast út í náttúruna í skoðunarferð. Að því tilefni var ákveðið að skella sér í gönguferð.

Undirritaður fór með hópinn frá grunnskólanum á Hvammstanga og var stefnan tekin á vatnsnesfjall. Við gengum stíginn norðan við Syðri Hvammsá og fórum upp að tjaldstæði. Stutt stopp var gert við mylluna og svo var haldið áfram upp með ánni.

Stoppað var í Skógarmannsgili en á leiðinni þurfti að stikla nokkrum sinnum yfir ána. Svo var farið upp á brún og stefnan tekin til norðurs.

Því næst var farið niður með Draugagili og fylgdum við svo Ytri Hvammsá til byggða. Þessir hressu ferðafélagar voru ánægðir með það sem fyrir augu bar og komu sáttir aftur til baka.

Eyþór Kári Eðvaldsson fréttaritari.

^ Go back to top PRESS_CORNER3_ALT PRESS_CORNER4_ALT
07 www.hunathing.is Hunathing vestra

12.07.2006: hunathing.is - Sjálfboðaliðar SEEDS á Hvammstanga, Ísland

Í dag kom hópur sjálfboðaliða frá samtökunum SEEDS. Um er að ræða samtök ungra sjálfboðaliða sem vinna að umhverfismálum í víðasta skilningi þess orðs. Markmið samtakanna eru að stuðla að friði og vináttu milli manna, og að fólk umgangist náttúruna af virðingu.

SEEDS, is a non-governmental, non-for-profit organisation with international scope. Our main focus of activities is related to environmental, nature oriented and outdoors issues.

Sjálfboðaliðarnir munu dvelja hér í þrjár vikur ogvinna, í samstarfi við vinnuskóla Húnaþings vestra, að ólíkum verkefnum, s.s. göngustígagerð, skógrækt og viðhaldi gamalla mannvirkja.

Þau munu m.a. hjálpa til við undirbúning unglistahátíðarinnar Eldur í Húnaþingi og að sjálfsögðu munu þau taka þar virkan þátt í ýmsum uppákomum.

SEEDS, SEE beyonD borderS, cooperates in Hvammstangi and the Húnaþing vestra district with the local authorities and particulary with the Environmental affairs department, headed by Arnar Birgir, the local contact during this 20 days of the project. Jointly with them and the local youngsters working for the "Vinnuskóla" or "Working school", volunteers will be working in different outdoors and nature-related issues as: Reforestation works in the area (planting trees), maintenance or construction of hiking trails and walking paths, cleaning up actions on the shore/beach, collecting trash and garbage.

Additional tasks related to the environmental, nature related and outdoor topics may be linked to the construction of a small wooden house, which was used in former times by fishermen to dry the catch and to maintain – repaint old yellow stones used also by fishermen to orientate themselves when on sea.

^ Go back to top PRESS_CORNER5_ALT PRESS_CORNER6_ALT
06 Landssambands aeskulydsfelaga LAEF posturinn

26.06.2006: LÆF pósturinn - Landssamband Æskulýðsfélaga, Ísland

Sambandsþing Landssambands æskulýðsfélaga var haldið nú fyrir skemmstu í kjallara Hins Hússins, þar sem Landssamband æskulýðsfélaga hefur aðstöðu. Fundargerð í heild sinni verður hægt að finna á heimasíðu Landssambands æskulýðsfélaga von bráðar en það sem kannski helst stóð upp úr var inntaka nýrra félaga. Nýju félögin sem fengu inngöngu voru Samfés, Samtök félagsmiðstöðva, Aiesec, alþjóðleg nemendasamtök og SEEDS, See beyond borders. Eru þessi samtök boðin hjartanlega velkomin í sambandið.

Einnig voru samþykktar margar lagabreytingartillögur og er þar kannski helst að nefna fækkun deilda úr sjö niður í sex og breytingar á stjórnarfyrirkomulagi.

Framkvæmdavaldi sambandsins var tvískipt, annars vegar í sambandsstjórn sem í eiga sæti 12 fulltrúar, 2 frá hverri deild og svo framkvæmdastjórn sem er skipuð 6 fulltrúum sambandsstjórnar, einum úr hverri deild sambandsins.

^ Go back to top PRESS_CORNER3_ALT PRESS_CORNER4_ALT
05 Morgunbladid Sjalfbodalidar a ferdinni a Kopaskeri

23.06.2006: Morgunblaðið – Sjálfboðaliðar á ferðinni á Kópaskeri, Ísland

Kópasker | Sjálfboðaliðar frá samtökunum Seeds dvelja á Kópaskeri þessa dagana. Þeir munu aðallega vinna að hreinsun á umhverfinu, t.d. í fjörum.

Hópurinn, sem samanstendur af 13 ungmennum frá átta löndum, hélt kynningarfund í skólanum þar sem unga fólkið kynnti sig og starfsemi Seeds og bauð upp á ýmsa rétti og kökur, hver frá sínu landi, en einnig gafst þeim færi á að smakka svið og hákarl.

Kópaskersbúar og nágrannar fjölmenntu á kynningarfundinn, sem var mjög skemmtilegur og maturinn góður.

Á myndinni er hópurinn ásamt hópstjóranum, Oscar Uscátegui frá Kólumbíu, lengst til hægri, en hann er Kópaskersbúum að góðu kunnur fyrir störf sín sl. tvö sumur með Veraldarvinum.

05 Morgunbladid Sjalfbodalidar a ferdinni a Kopaskeri   Download Morgunblaðið – Sjálfboðaliðar á ferðinni á Kópaskeri

^ Go back to top PRESS_CORNER5_ALT PRESS_CORNER6_ALT

Go to page # | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |