Warning: include(language/fr/8.inc) [function.include]: failed to open stream: No such file or directory in /home/seedsice/public_html/index.php on line 7

Warning: include() [function.include]: Failed opening 'language/fr/8.inc' for inclusion (include_path='.:/usr/lib/php:/usr/local/lib/php') in /home/seedsice/public_html/index.php on line 7
TITLE
PRESS_IMG_ALT

Dossier de presse


Picture6

26.11.2008: voices.sk - Island and Ivana Madariová, Slovaquie

Thanks to the European Volntary Service spent Ivana Madariová seven moths in Iceland. In here she coordinated international voluntary workcamps. She talks about her interesting experience from isolation and remarkable experiences.

http://www.voices.sk/island (video in Slovak)

GO_BACK_TOP PRESS_CORNER3_ALT PRESS_CORNER4_ALT
Picture01

13.08.2008: betriborg.is - Taka til hendinni fyrir Menningarnótt, Islande

Hópur ungs fólks frá SEEDS (SEE beyonD borderS) hóf í morgun störf hjá Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar. Í hópnum eru fimmtán ungmenni frá Evrópu og eru þau sjálfboðaliðar í þágu Reykjavíkur næstu tvær vikurnar. Kraftar þeirra eru vel þegnir enda í mörg horn að líta við að halda borginni hreinni og einnig munu þau koma inn í verkefni sem ljúka þarf fyrir menningarnótt.

Einar Guðmannsson hjá Framkvæma- og eignasviði heldur utan um verkefni hópsins. Hann stóð í morgun fyrir stuttri kynningu fyrir hópinn á starfsemi sviðsins og síðan fóru þrír íslenskir flokksstjórar frá þjónustu- og hverfamiðstöð með þátttakendur í stutta skoðunarferð um borgina. Meðal annars var gert stutt stopp við Höfða og þar var meðfylgjandi mynd tekin. Eftir hádegi bíða síðan fyrstu verkefnin þeirra.

SEEDS, SEE beyonD borderS, eru íslensk samtök óháð stjórnvöldum, rekin án hagnaðarsjónarmiða, eins og segir á heimasíðu SEEDS (www.seedsiceland.org). Aðalhlutverk Seeds er að stuðla að menningarlegum skilningi í gegnum vinnu tengda umhverfismálum. Í september kemur annar hópur á vegum samtakanna til landsins.

http://www.betriborg.is/?action=grein&id=11472

GO_BACK_TOP PRESS_CORNER5_ALT PRESS_CORNER6_ALT
Picture2

06.06.2008: bb.is - SEEDS lætur gott af sér leiða á Bíldudal, Islande

Hópur sjálfboðaliða hefur verið að störfum á Bíldudal síðustu daga á vegum SEEDS, (See beyond borders), sem eru alþjóðleg samtök sem vilja stuðla að auknum skilningi fólks á náttúru og umhverfi og samskiptum ólíkra þjóða og menningar. Hópurinn hefur unnið að ýmsum verkefnum, meðal annars við að gera göngustíga í skógræktinni fram í dal. „Svæðið er afar fallegt og má með sanni segja að þarna leynist náttúruperla sem vert er að skoða. Nú er búið að leggja stíg að Seljalandsfossi og laga aðra stíga sem liggja í gegnum skógin. Tilvalið er að fá sér gönguferð þarna og njóta óviðjafnanlegrar náttúrufegurðar“, segir á bildudalur.is.

http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=116782

GO_BACK_TOP PRESS_CORNER3_ALT PRESS_CORNER4_ALT
49 Visir.is hvalstodvar Sudureyri Talknafjordur

09.09.2007: Vísir.is - Unnið við varðveislu hvalstöðvar á Suðureyri..., Islande

Hópur sjálfboðaliða frá alþjóðlegum samtökum ungs fólks sem nefnist SEEDS, SEE beyonD borderS, vinnur nú að varðveislu minja hvalstöðvarinnar á Suðureyri við Tálknafjörð. Búið er að hreinsa í kringum og innan úr Katlahúsinu og hafið er fyrirbyggjandi viðhald á skorsteininum. Hópurinn er skipaður 13 einstaklingum frá Rússlandi, Englandi, Ítalíu, Spáni, Frakklandi, Þýskalandi og Japan, en þeir sóttu um að komast í verkefnið eftir að það var auglýst á Internetinu. Norðmenn reistu og ráku hvalveiðistöð á Suðureyri um aldamótin 1900, en hættu rekstrinum í fyrri heimstyrjöldinni. Stöðin var starfrækt á ný á árunum 1930-40 en þá af innlendum aðilum. Var hvalstöðin á innanverðri eyrinni og bryggja fram af Eyraroddanum og sjást enn miklar minjar þessara mannvirkja.

http://www.visir.is/article/20070909/FRETTIR0605/309090010&SearchID=7329512237690

GO_BACK_TOP PRESS_CORNER5_ALT PRESS_CORNER6_ALT
48 SEEDS hopurinn vidsvegar um Sandgerdi

20.08.2007: 245.is - SEEDS hópurinn víðsvegar um Sandgerði, Islande

SEEDS hópurinn víðsvegar um Sandgerði

Það vantar ekki kraftinn í meðlimi SEEDS hópsins, en fólkið er nú víðsvegar um Sandgerði að mála, taka til og hreinsa.

Þegar ljósmyndari 245.is kíkti á þau í morgun voru þau hin hressustu. Þau skiptu liði og fóru nokkrir og tóku til við Sandgerðishöfn, og nokkrir við Sandgerðisveg og við Skýlið. Einnig var Carl Berg að mála Skýlið.

Heimasíða Seeds hópsins er: http://www.seedsiceland.org

http://245.is/displayer.asp?page=44&Article_ID=622&NWS=NWS&ap=NewsDetail.asp&p=ASP%5C~Pg44.asp

GO_BACK_TOP PRESS_CORNER3_ALT PRESS_CORNER4_ALT
47 Umhverfisatak Sandgerdi SEEDS

19.08.2007: 245.is - Umhverfisátak í Sandgerði, Islande

Hópurinn SEEDS, SEE beyonD borderS staddur hér í Sandgerði.

Nú er umhverfisátak í gangi í Sandgerði og verður fram að Sandgerðisdögum. Settir hafa verið upp gámar við áhaldahús bæjarfélagsins og hvetur bæjarráð húsráðendur og fyrirtæki bæjarfélagsins að taka þátt í átakinu.

Hópur á vegum SEEDS er nú staddur í Sandgerði og mun taka þátt í átakinu næstu daga.

Ljósmyndari hitti hópinn í kvöld á veitingastaðnum Vitanum. Ýmsir aðilar koma að styrkveitingu: Vitinn býður öllum í mat, Hópferðir Sævars Baldurssonar sjá um að ferja hópinn á milli staða og Bláa Lónið býður frítt til sín. Auk þess styrkir Sandgerðisbær SEEDS-hópinn.

http://245.is/displayer.asp?page=44&Article_ID=614&NWS=NWS&ap=NewsDetail.asp&p=ASP\~Pg44.asp

GO_BACK_TOP PRESS_CORNER5_ALT PRESS_CORNER6_ALT
50 reykjavik.is SEEDS Sjalfbodalidar.JPG

17.08.2007: Reykjavík.is - SEEDS Sjálfboðaliðar í Reykjavík, Islande

SEEDS Sjálfboðaliðar í Reykjavík

Alþjóðlegir sjálfboðaliðar frá SEEDS, SEE beyonD borders, eru nú staddir í Reykjavík til að aðstoða við þrjár stærstu hátíðar landsins, Hinsegin Daga, Reykjavíkur Maraþon og Menningarnótt.

Hópurinn saman stendur af 17 þátttakendum frá 9 mismunandi löndum, Tékklandi, Finnlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu, Slóveníu, Kóreu, Spáni og Bretlandi. Þátttakendurnir munu dvelja í Reykjavík í tvær vikur og aðstoða við framkvæmd hátíðanna en einnig leggja þau framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar lið með vinnu á almenningssvæðum borgarinnar.

SEEDS eru íslensk sjálfboðaliðasamtök sem skipuleggja alþjóðlega sjálfboðaþjónustu á umhverfis-, náttúru- og menningartengdum þáttum sem sumir hverjir tengjast beint hátíðum, menningarviðburðum eða íþróttasamkomum.

Í sumar hefur SEEDS hefur skipulagt 25 verkefni um allt Ísland þar sem meira en 300 sjálfboðaliðar hafa tekið þátt frá 32 mismunandi löndum. SEEDS gefur einnig íslenskum sjálfboðaliðum tækifæri til að taka þátt í alls kyns verkefnum í um 70 mismunandi löndum.

Frekari upplýsingar má finna á: http://www.seedsiceland.org

http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-757/521_read-7901/

GO_BACK_TOP PRESS_CORNER3_ALT PRESS_CORNER4_ALT
46 Fjolskylduhatid Fiskidagurinn mikli

07.08.2007: Dalvík.is - Fjölskylduhátíðin “Fiskidagurinn mikli“, Islande

Fjölskylduhátíðin “Fiskidagurinn mikli “verður haldinn hátíðlegur í sjöunda sinn laugardaginn 11. ágúst

Fiskidagurinn mikli er haldinn í sjöunda sinn í ár. Frá upphafi hefur markmiðið með þessari hátíð verið að fá fólk til þess að koma saman, hafa gaman, borða fisk og að allt á hátíðarsvæðinu sé frítt, matur skemmtun og afþreying. Hátíðin er með svipuðu sniði og áður, en alltaf bætast nýjar hugmyndir við. Föstudgskvöldið 10. ágúst er hlaðið áhugaverðum dagskrárliðum. Klukkan 18.30 mun menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir taka skóflustungu af nýju menningarhúsi sem Sparisjóður Svarfdæla færði íbúum Dalvíkurbyggðar að gjöf síðastliðinn vetur, Vináttukeðjan verður mynduð með þátttöku íbúa og gesta kl 19.00. Frumflutt verður lag, Karl Sigurbjörnsson biskup og Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti íslands ræða um vináttuna, Karlakór Dalvíkur, leikskólabörn af leikskólanum Fagrahvammi í Dalvíkurbyggð, Guðrún Gunnarsdóttir og fleiri syngja. 5000 friðardúfublöðrum verður sleppt og í lokin verður myndað risaknús. Í tengslum við Vináttukeðjuna verður Vinátturefillinn sýndur í Ráðhúsinu á Dalvík. Vinátturefillinn er alþjóðlegt verkefni sem fjallar um vináttu, fegurð og frið. Það eru engin landamæri, hvorki landfræðileg, kyn eða aldur, trúarbrögð eða nokkur önnur landamæri. Eina skilyrðið til þátttöku er að gera handavinnubút og hugsa um vináttu á meðan. Fiskisúpukvöldið mikla sem svo sannarlega hefur slegið í gegn er á sínum stað kl 20.00 og nú hafa aldrei verið eins mörg hús sem ætla að setja út kyndla og bjóða gestum og gangandi heim í ilmandi heita fiskisúpu. Það er mikil eftirvænting fyrir þessari uppákomu ekki síst hjá þeim sem bjóða heim og hafa margir undirbúið sig vel, að sögn þeirra er einstaklega gefandi að taka þátt og andrúmsloftið sem myndast rólegt en kyngimagnað.

Á Fiskideginum mikla sjálfum á laugardeginum 11.ágúst milli 11.00 og 17.00 verður margt í boði, 15 réttir eru á matseðlinum og meðal nýjunga eru saltfiskbollur, ígulker, austurlenskar rækjubollur og plokkfiskur. Skemmti- og afþreyingar dagskráin hefur aldrei verið eins fjölbreytt og nú, dagskrá verður á hátíðarsviðinu allan daginn ásamt á annan tug fjölskylduvænna atriða á hátíðarsvæðinu sjálfu. Fiskasýningin verður sú stærsta frá upphafi og að öllum líkindum sú stærsta í Evrópu með hátt í 200 tegundir af ferskum fiski, það verður margt nýtt og spennandi að sjá og m.a. mun kafari kafa eftir sjávardýrum í höfninni og bæta á sýninguna. Það koma um 160 aðilar fram á sviðinu og hátíðarsvæðinu almennt þennan dag og um 300 sjálfboðaliðar koma að deginum. 19 sjálfboðaliðar frá 10 löndum frá SEEDS sjálfboðasamtökunum í Dalvíkurbyggð á vegum Fiskidagsins mikla í tvær vikur í og aðstoða við undirbúning Fiskidagsins mikla.

http://dalvik.is/frettir/nr/1697/

GO_BACK_TOP PRESS_CORNER5_ALT PRESS_CORNER6_ALT
45 erlendir sjalfbodalidar fiskidagurinn dalvik

04.08.2007: fiskidagur.muna.is - SEEDS - Erlendir sjálfboðaliðar..., Islande

20 erlendir sjálfboðaliðar á vegum Fiskidagsins mikla

S.l fimmtudagskvöld 2. ágúst komu til Dalvíkur 19 erelndir sjálfboðaliðar sem munu dvelja í Dalvíkurbyggð í tvær vikur og aðstoða við Fiskidaginn mikla, m.a. munu þau snyrta, pakka fiski, skreyta, sjá um 5000 vináttublöðrurnar sem verður sleppt á Vináttukeðjunni, grilla mat, aðstoða við dagskrá og fleira. Þau munu einnig njóta gestrisni heimamanna, Landflutningar Samskip bjóða þeim til Grímseyjar með Sæfara, Simbi og Ella í Tvisti bjóða þeim á hestbak, heimamenn bjóða þeim í mat og margt fleira. Sjálfboðasamtökin sem þau koma frá heita SEEDS og hafa aðsetur á Íslandi. Þau koma frá 9 þjóðlöndum, Frakklandi, Japan, Bandaríkjunum, Þýskalandi,Kóreu, Ítalíu, Ungverlalandi, Portúgal og Spáni. Einn sjálfboðaliðanna Frank Verriest 42 ára kokkakennari er að koma til Íslands í þriðja skipti og eitt af þeim þá var hann óvænt staddur hér á Dalvík á Fiskidaginn mikla 2004 og varð verulega hugfanginn af hátíðinni og umhverfinu og er nú kominn aftur til að leggja hönd á plóginn. Heimasæturnar Telma Óskarsdóttir og Íris Daníelsdóttir eru tengiliðir og aðstoðarkonur hópsins.

Fiskidagurinn mikli þakkar eftirtöldum aðilum fyrir aðstoð vegna fæðis fyrir hópinn:

Samherji.

Norðlenska.

Kjarnafæði.

MS.

Íbúum sem bjóða þeim heim.

http://www.fiskidagur.muna.is/?mod=frettir&view=one&id=110

GO_BACK_TOP PRESS_CORNER3_ALT PRESS_CORNER4_ALT
33 Morgunbladid Fjoruhreinsun og grodursetning

29.07.2007: Morgunblaðið - Fjöruhreinsun og gróðursetning, Islande

UNDANFARIÐ hafa níu sjálfboðaliðar frá samtökunum SEEDS verið að störfum á Kópaskeri og Raufarhöfn á vegum Norðurþings. Sjálfboðaliðarnir sem voru frá sex ólíkum löndum, unnu aðallega að gróðursetningu og fjöruhreinsun á meðan á dvöl þeirra stóð.

UNDANFARIÐ hafa níu sjálfboðaliðar frá samtökunum SEEDS verið að störfum á Kópaskeri og Raufarhöfn á vegum Norðurþings. Sjálfboðaliðarnir sem voru frá sex ólíkum löndum, unnu aðallega að gróðursetningu og fjöruhreinsun

á meðan á dvöl þeirra stóð. Að venju héldu þau alþjóðakvöld á Kópaskeri þar sem íbúum og gestum gafst kostur á að kynnast heimalöndum sjálfboðaliðanna en hvert þjóðarbrot var þar með sinn bás þar sem hægt var að fræðast um mat og menningu hverrar þjóðar en að auki var taílenskur bás og íslenskur bás á vegum heimamanna svo unga fólkið frá SEEDS fékk einnig að smakka þjóðlegan íslenskan mat.

http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?radnr=1157562

GO_BACK_TOP PRESS_CORNER5_ALT PRESS_CORNER6_ALT

PAGE_NUM | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |